I love you

Heimur Kolbjargar

15.02.2008 10:44:15 / kobba

Shit hvað maður er góður í þessu!!!

Heyrðu já kanski maður skelli inn eiu litlu bloggi....
Ég er búin að vera í sálfræðitíma undanfarið og ég hef bara komist að því að við erum vond.... jább við erum öll vond, ég verð bara reið út í sjálfa mig að hugsa út í þetta. Sko rannsóknir sýna það að fólk er sjálfselskt s.s. að maður gerir ekki neitt nema að maður hefur eitthvað út úr því sjálfur og ég er svo ekki sammála því....eins og t.d. bara ef maður lánar vini manns bílinn sinn, hvað hefur maður út úr því EKKERT, jú vináttu en þú hefur hana fyrir. Það er kanski pínu sannleikur í þessu en mér finnst það ekki vera sjálfselska, það þarf að finna annað hugtak yfir þetta. Og svo var verið að tala um það að fólk hjálpaði ekki öðru fólki í neyð og mér finnst bara ömurlegt að hugsa út í það, það er kanski allveg rétt og er það miðan við rannsóknir en ég verð bara reið við sjálfan mig ef ég hugsa út í það að  kanski eigi ég bara eftir að pæla ekkert í því þegar einhver liggur meðvitundarlaus út i bónus og svo er kanski eitthvað alvarlegt að honum og ég veit til þess að ég hefði getað gert eitthvað í þessu. Jæja nú er ég bara farin að tala út í eitt og þið eruð örugglega bara eitthvað jájá Kolbjörg gott hjá þér!!!!!
Þannig að ég skal bara fara að segja ykkur eitthvað skemmtilegt Það er þorrablót um helgina. Ég hlakka svo til!!!! Bjarki er líka að koma á eftir og ég ætla að draga hann með á hestbak:D jújú og Aggi og Lilja koma síðan í kveld á nýja bílnum. jæja tíminn fer að verða búin, skrifa kanski eitthvað seinna....
:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 13:22:17 / kobba

Hversdagslífið

Jæja þá er líka komin þessa þvílíka rútína á líf mitt.... Mæti í skóla á morgnana stundum klukkan áttta, stundum klukkan 9 og einu sinni klukkan 10(Jeiiii), er alltaf búin í skólanum klukkan 4 nema á föstudögum. Þá tekur við heimanám, svo þessa viku og þá næstur er alltaf leiklistaræfing frá 8-11 á kvöldin. Eftir það verður leiklistaæfingunum síðan meira skipt niður hjá leikurum. Jæja ég verð nú að fá að tjá mig pínu... sko það er allt gott og blessað að vera byrjuð að æfa fyrir leikritið en málið er að við erum ekkert að æfa við erum bara eitthvað að spjalla í 3 tíma á dag í staðinn fyrir að ég gæti bara verið að lesa í sjálfstæðu fólki eða sofa, þar sem ég geri nú ekkert allt of mikið af því(finnst mér allavega). Við erum ekki komin með handrit þannig að ég veit bara ekki hvað við erum að fara að gera þarna í 3 tíma á dag í 2 vikur.... og svo um helgina líka!!!!

 

Jæja allavega um helgina er Bjarki að koma austur, svo er jarðarför á laugardeginum þannig að ég sé fyrir afslöppunardag á sunnudeginum....

Já svo er ég að fara að taka þátt í Barkanum, já gott fólk það er s.s. söngvakeppni ME, svona fyrir þá sem ekki vita af því. Ég hélt nú að ég myndi ekki gera það á minni skólagöngu en allt getur gerst. Ég, Halla og Dagrún ætlum að slá í gegn :hehe:

Nú jæja það er svo mikið um að vera að ég ætla bara að segja frá því svona jafn óðum.

 

Ég er samt pínu svekkt... það verður ekkert úr því að fara til Þýskalands í ár eins og stefnt var að með skólanum, til Trier, nei nei það verður ekki farið að því að við fáum ekki styrki...ANDSKOTANS helvítis fólk sem á pening en vill ekki leyfa okkur að fara út!!!!!!

 

Með þessum orðum kveð ég ykkur í dag..

HITTUMST HEIL!!!!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 15:43:52 / kobba

Blessuð sé minning hennar

Jæja það þýðir ekkert annað en að skrifa pínu hérna. Jæja nú eru jólin og jólafríið liðið, það er allveg ótrúlegt hversu fljótt það leið. Fyrir jól það var minns nú bara að mestu heima að hjálpa henni móður minni við að baka, þrífa og pakka inn jólagjöfum, svo fór maður náttúrulega út í fjárhús sirka 1 sinni á dag, það var voðalega ljúft. Jóladagarnir voru náttúrulega bara afslapp og matur og já matur og afslapp.

Svo um kvöldið annan í jólum þá kom Bjarki til mín af því að það var spáð svo vondu veðri daginn eftir. Hann var síðan hjá mér fram yfir áramót, gífulega kósý allt saman. Við vorum heima hjá afa og ömmu á áramótunum, gerðum brennu fyrir strákana og svona annað sem fylgir áramótunum. Áramótaskaupið í ár, hvernig fannst ykkur það? Mér persónulega fannst þetta fínasta skaup, mér fannst sumt of langdregið og svo vantaði eitthvað svona VIRKILEGA fyndið sem stæði svona upp úr.

En já áfram með smjörið, þann 2. janúar hélt ég síðan með Bjarka heim til hans á Blönduós, maður er alltaf að prófa eitthvað nýtt því að á þennan stað hefði ég nú aldrei komið, bara keyrt framhjá. Vorum þar í 2 heila daga og síðan hluta af 2 öðrum. Svo fórum við suður til Kóparvogs. Fórum í heimsókn hjá ömmu hans sem á hunda af eins tegund og mig langar í og ég öfunda hana mikið af því... ekkert smá sætir hundar!

Farið að versla á sunnudeginum, ég keypti mér ÓGÓ flotta skó. Bjarki keypti Gitar Hero sem ég BTW elska út af lífinu þetta er allveg yndislegur leikur. Hann var spilaður þó nokkur þann tíma sem ég var fyrir sunnan eða s.s. til seinniparts mánudagsins.

Skólinn byrjaði síðan hjá mér núna seinasta þriðjudag og mér líst bara vel á þetta allt saman, 25 einingar sem er svolítill slatti en maður verður bara að vera dugleg að læra svo maður geti útskrifasst í vor :D:D:D:D

Langamma mín hún Bergþóra Stefánsdóttir lést í dag 10. janúar 2008, 86 ára að aldri. Blessuð sé minning hennar!!! Hvíldu í friði amma mín.


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 17:57:40 / kobba

Jólafrí...

Jæja krakkar mínir þá er mín bara komin í jólafrí.

Langaði bara að deila þessu með ykkur og líka því að ég náði ensku:D:D:D:D Hamingja í gangi

 

Kveðja Kolbjörg í jólafríi 


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 17:59:13 / kobba

6/8 og Jólafrí eftir 4 daga

Heyrðu já maður verður nú að sýna smá lit hérna og blogga :P Ég er klárlega ekki með bloggheila!!!!! (Já, Bjarki þetta er úr spaugstofunni). En allavega Vitið þið hvað mig langar í? Nei mig langar í 1-2 seríu af Hrútinu Hrein..... ég held að þetta sé bara það fyndnasta sem ég hef sé, hehe ég er ekki bóndi:haha:

Hvað get ég sagt ykkur í fréttum. Árshátíð ME var þann 23. nóvember og ég fór þangað í mínum gífurlega fallega kjól með fínt í hárinu í boði Höllu. Já þetta var bara fínasta fína árshátíð, skemmtiatriðin voru óendalega fyndin. En já síðan kom líka Bjarki minn til mín þessa helgi, hann fór niður á Reyðarfjörð meðan árshátíð var og síðan fórum við heim á laugardeginum. Svo átti hann að fara eitthvað hálf 10 á mánudeginum en það var ekki flogið.... og síðan var flogið með eina vél klukkan 11 en hann gat ekki farið með henni og svo kom þota til að ná í hann en nei nei þá flaug þotan á Gæs sem festist í hreyflinum og hún gat ekki flogið til Reykjavíkur. Þannig að Bjarki fór ekki suður fyrr en klukkan 5 sem að var bara gaman.... eitthvað lítið mætt í skólann þann daginn :S En það er nú allt í lagi það var t.d einn kennarinn fastur í Reykjavík og svona skemmtilegt.

Heyrðu já síðan kom bara seinasta vikan í skólanum og síðan seinustu helgi á laugardeginum 1.des þá byrjuðu prófin. Ég fór í íþróttapróf þá og svona skemmtileg. Síðan á sunnudeginum þá var kór ME að syngja í kirkjunni á Egilsstöðum. Og svo þessa viku eru bara búin að vera próf. Er búin með 6 próf af 8. Á eftir tvö sálfræðipróf, sem er nú bara skemmtilegt. Svo er maður bara kominn í jólafrí eftir 4 daga, það er nú eitthvað annað en sumir geta sagt!!!!! hehehe.

Jæja nú ætla ég að hætta þessari vitleysu og fara að gera ekki neitt... Ég er að bíða eftir einkunnum, mér leiðist þessi bið!!!!! Eins og t.d. Íþróttaprófið ég meina HALLÓ maður er svona 5 mínútur að fara yfir þessi próf í mesta lagi og það ætti að vera löngu komið úr þessu prófi ég fór í það fyrir 6 dögum......

 

Allavega ég er búin að vera á föstu í 2 mánuði:D  Bara að deila þessu með ykkur


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 12:32:52 / kobba

Jæja þetta tókst:)

Ja hérna hér..... maður nennir nú ekki einu sinni að kíkja hingað inn lengur :S Ég þoli ekki að þurfa að vakna þegar manni er að dreyma eitthvað ógeðslega skemmtilegt, eins og í morgun þá var mér að dreyma svo vel, svo hringdi vekjaraklukkan og ég bara eitthvað setti á snús og mér var byrjuð að dreyma aftur þegar að vekjaraklukkanhringdi aftur,,,,, þá varð ég nú pirruð.  

Heyrðu, síðan ég bloggaði seinast þá eru liðnar allveg eitthvað 1 og hálfur mánuður eða eitthvað, það er nú bara heljar innar hellins slatti búinn að gerast hjá mér síðan þá. Sem tengist aðallega suðurferðum sem hafa verið óvenjutíðar hjá mér þetta haustið, alltaf að fara að hitta kæró :D Fór reyndar eina helgi á akureyri að hitta Guffu og Dagnýju og eitthvað Önnu Margréti og TINNU sem er alltaf vinandi og maður getur aldrei hitt. 

Þar seinustu helgi þá fór ég suður að taka þá í Leiktu Betur með Höllu, Fjólu og Jóni V. Við náttúrulega drullutöpuðum en það var bara ógeðslega gaman, kepptum við MA í fyrstu umferð og þau afrekuðu síðan að vinna keppnina og brjóta þannig upp vinningsárin þeirra í MH sem ég er bara mjög ánægð með.

Já ég keypti mér kjól og skó fyrir árshátíðina JJJJJJ Hann er bara sætur og skórnir líka, svo er bara árshátíðin núna á föstudaginn, húsið opnar klukkan 18.00. Guðfinna mín er að fara að koma austur og fara með mér á árshátíðina. Svo ætlar Bjarki líka að koma austur en hann vildi ekki koma með mér á árshátíðina því að hann er svo gamall greyið mitt..... 

 Svo er minns bara hættur við að fara í útskriftarferð með ME þar sem að það er bara enginn að fara sem að ég get verið að hanga með í 2 vikur, HALLA hætti við að fara eftir að hafa dregið mig í þennan hóp *arg* En er kanski að fara í staðin eitthvert út með Bjarka og hans fjölskyldu.... svona sirka 20 manns. Shit hvað það verður gaman á næsta ári.... það er svo mikið að gera, en ég nenni ekkert að fara út í það núna. 

Mér finnst þetta bara ótrúlega gott framtak hjá mér að hafa bloggað. Ég er kát...... í fyrsta skipti alla önnina er ég kát í landafræði!!! Var nefnilega að frétta það að fyrirlesturinn sem við þurfum að gera er ekki fyrr en í næstu viku J Jæja núna nenni ég ekki lengur að pikka hérna inn liðna daga þar sem að það er búið að gerasta svo mikið á þessu tímabili að ég gæti haldið áfram hérna forever. Svo ég kanski reyni að standa mig betur núna.... reyndar eru prófin að byrja bara eftir 11 daga standa yfir í 11 daga hjá mér og þá er ég bara komin í jólafrí þann 11.desember. Jei þaðð verður gaman. En allavega tíminn er að ferða búinn þannig að.... BLESS 

ME vann morfískeppni á móti Fjölbraut á Snæfellsnesi!!!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 10:01:51 / kobba

Veisla.....suðurferð í námd

Jájá ég bara ákveð það að skella inn einu bloggi þar sem ég er í gati og hef ekkert betra að gera... Ég ætla að byrja á því að kvarta yfir Landafræði....Seinast þriðjudag þá fengum við boð um það að landafræði yrði í annari stofu en vanalega, en kennarinn okkar var búin að segja okkur að það yrði enginn tími á þriðjudegi þannig að ég vissi ekkert hvort ég ætti að mæta eða ekki en ég ákvað það bara að mæta ekki sem var rétt ákvörðun hjá mér þar sem að það átti ekki að vera neinn tími. Jæja síðan á fimmtudeginnum þá var búið að segja okkur að það yrði próf en neinei við bara mættum þarna og svo fengum við bara að fara því að kallinn sem að sér um að kveikja á fjarfundabúnaðinum og dæmi vissi ekkert af þessu og það var heldur ekki inn á moodle!!! jæja allt í lagi með það svo í dag mætti ég líka í landafræði og þá náðist ekki samband við fjarfundabúnaðinn og kallinn hringdi í kennarann og þá kom í ljós að kennarinn hefði bara gleymt að senda prófið til kallsins og bara eitthvað vildi að við vöknuðum klukkan 8 á morgun til þess að taka próf....EKKI SÉNS og svo spurði hann hvort við gætum tekið prófið klukkan 8 á föstudegin,,,,ööööö NEI verð voða voða mikið ekki á þessum landshluta þá. En jæja ég ætla að hætta að kvarta yfir þessu því þetta er orðið geðveikt ruglingslegt.

Seinasta helgi var snilldin ein, ég var að vinna upp á Skjöldólfsstöðum í 16 tíma á laugardaginn og svo þegar ég var hætt að vinna skellti ég mér bara hinum megin við barinn og djammaði með fólkinu sem var í veislunni sem var þarna. Já það var gaman, EINHVER var samt geðveikt pirrandi þarna um kvöldið og man ekkert eftir þv...en já gaman að því. Svo á sunnudeginum þá fór að rétta og svo í vinnuna klukkan 3 og það var gaman í vinninunni á sunnudeginum fyrir utan það að ég var ógeðslega þreytt manneskja, en Hrafnhildur og Hanna Dóra voru allveg að bjarga deginum.

Það eru 2 dagar í suðurför hjá mér, Höllu, Antoni og Lilju... Og í dag gerðist mikið gleðiefni, það var nefnilega kona nokkur er hringdi í hana Höllu frá tattú og skart og sagði henni að það hefðu losanað tímar í tattú fyrir okkur 3 þannig að ég er að fara að fá mér TATTÚ!!!!! shit hvað ég hlakka til, snildin ein!!!!  Og svo erum við líka búin að ákveða á hvaða leikrit við ætlum fyrir sunnan þannig að þetta er allt saman að koma!!!

Ég fer heim á morgun til þess að pakka niður og til þess að fara upp í Eiríksstaði og hitta Sonju og litlu stelpuna hennar sem fæddist þann 26.sept :D:D:D enn gaman að því...

ætla nú að fara að gera verkefni í íslensku!!!! Verð kanski duglegri að blogga í þessum mánuði??? 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 08:36:06 / kobba

Tölvan mín komin í lag....

Loksins, loksins er tölvan mín komin. Ég geðveikt ánægð með að vera með hana í tímanum núna:D:D:D:D:D:D var að setja í hana office pakkan og dæmi í gær..... Humm hvað er annars hægt að segja frá. Sama dag og ég fékk tölvuna mína til baka þá varð síminn minn bilaður....Ég missti hann ofan í glas:S vandræðalegt!!!! Nú er ég með ljótan og leiðinlegan lánssíma og ég þoli hann ekki. Þórhallur mig langar í símann þinn!!!!!

Ég var að smala um helgina í vopnafirði. Á föstudeginu riðum við upp í kofa og þar var bara spjallað og drukkið og svona. Visky er vont voða vont......en koníak í kókómjólk er ágætt samnt ekkert gott, betra en vísky.

Hér sit ég í Landafræðitíma og ég bara skil ekki EITT orð af því sem að kallgreyið er að babla um. EN það kemur mér svo sem ekki á óvart...búin að fá að heyra það að þettu sé leiðinlegu og óskiljanlegur áfangi.

Það er búið að vera busaball síðanég bloggaði seinast....ég var plebbi og mætti ekki.

Vá hvað lífið mitt er óathyglisvert.......Ég hlakka til eftir næstu helgi, því að þá ætla ég að minka við mig verkefnum.

Hey ég var í gitar hero í gær....orðin gekt góð (eða þannig) var að spila Hard í gær og ég er bara eitthvað GET EKKI NEITT!!!!

og svo er Hrafnkatla æðislegasta manneksja í heimi og allir eiga að vera ógeðslega góðir við hana því hún er frábærust og æðislegust og það er skemmtilegast í heimi að vera með henni í sálfræði, íþróttum og landafræði :D

Einmitt það sem mér lá á hjarta!!!!!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 09:45:51 / kobba

Skólinn byrjaður!!!

Þá er komið að því að maður er sestur á skólabekk enn eina ferðina. Ég mætti í skólan á fimmtudaginn og þá átti é að fara í svona fjarnámstíma...sem er nú svo sem ekki frásögufærandi nema hvað að það var engin búin að tengja fjarnámstækin þannig að við sátum þarna eins og hálfvitar og vissum ekkert hvað við áttum að gera, þannig að við bara fórum, hefði svo til í að vera sofandi en ekki mætandi í tíma sem síðan var ekki!!!!

Helgin var allveg dásamlega skemmtileg.....fór á djammið á föstudeginum þar sem ég var ekki að vinna og átti ekki að mæta fyrr en kl 13 á laugardeginum. Fór með Lilju og henni Guðrúnu vinkonu Lilju sem kom í egs alla leið frá selfoss engin smá vegarlengd....en allavega vorum fyrst á rúntinum og fórum að heimsækja vini þeirra frá selfoss sem búa hérna á egs. En síðan héldum við nú í Valaskjálf og fórum inn...ég eyddi 2000 kr fyrir það að koma okkur Lilju inn og við vorum bara inni í eitthvað 5 mín þvi það var ógeðslega leiðinleg innni en svo fórum við út og ég fann fólk sem ég þekki en Lilja og Guðrún fóru bara a rúntinn...... Fórum síðan heim einhverntíman og einhverntíman.

Svo fór ég í vinnuna á laugardaginn vorum allan dagin að undirbúa Skjöldólfsstaðarballið síðan var ég að vinna á barnum um kvöldið og það var allveg HRIKALEGA GAMAN....það urðu samnt slagsmál það var ekki gaman....

Svo fór ég aftur í vinnuna á sunnudegi bara búin að sofa í 3 og hálfan tíma. og ég var svo þreytt og pirruð á sunnudeginum að það hálfa væri helligur!!! En það er ekkert gaman að segja frá því. Þanig að ég ætla bara að hætta þessari vitleysu og fara í tíma eftir 20 mín.....gar mætti í skólan í morgun og það var enginn tími...ég ekki ánægð með sjálfa mig!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 12:00:32 / kobba

Allt fyrir ástina...eina sem aldrei nóg er af!!!! (ég dýrka Pál Óskar)

Hellóhelló alltaf jafn mikið líf á þessari síðu hjá mér....en jæja ég reyni þó eitthvað!!! Æ ég veit ekkert hvað ég á að segja...það eru 5 dagar þangað til við förum til útlanda og ég hlakka svo hrikalega til. Kvíði því að taka lest út í Danmörku...já ég veit ég hef ferðast með lest á hverju ári í heilt ár en það er allt annað ég skil þýsku og kann á lestakerfið þar. En í danmörku er allt annað og síðan talar fólkið bara eitthvað dönsku sem ég kann ekkert í...og eg verð bara eins og asni þegar miðamaðurinn biður um lestarmiðann :S Svo fer ég einhverntíman til þýskaland einn daginn og VERSLA!!!! jíbbíjei

En jæja hvað með það.....þarna þegar ég bloggaði seinast þá var einmitt ættarmót í gangi á skjöldólfsstöðu og ég bara varð að láta vita af því að það var allveg hrikalega gaman að vinna a barnum á laugardeginum BARA SNILLD!!!

Guð ég hef svoleiðis EKKERT að segja.....heyrðu jú ég fór á Lunga á laugardaginn síðasta en stoppaði bara stutt vegna þess að ég var að fara að vinna kl 7 á sunnudeginum.

Ég man ekki hvort ég sé buin að segja frá því en ég fór í klippingu....jább það er langt síðan og Halla klipti mig :D gekt fínt hjá elskunni!!!

Annars bara kveðjupartý fyrir Elínu uppp á Skjöldólfsstöðum á morgun. Og já afi á afmæli í dag og við héldum afmælis/töðugjöld veislu í dag. Halla kom hingað og klippti mömmu hárið og litaði. Ég bakaði köku það var gaman!!!!!

Annars ég bara farin að ná í mömmu. Vorum að fara með 2 hesta upp fyrir veg vegna þess að þeir eru ónothæfir...veikir í löppunum sjáðu til!!!!

BLE


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.07.2007 02:07:52 / kobba

Hestaferð og Ættarmót

Já þetta er nú það sem ég hef verið að brasa við síðan ég bloggaði seinast. S.s á mánudegi fyrir meira en viku komu þær Oddu og´Fía.....stórborgarrottur út Reykjavíkinni, hingað austur. Þær fóru síðan með mér og mömmu í hestaferð. Hún hófst á þvi að við riðum yfir Jöklu í fyrsta skipti sem var stórgaman. Síðan tók Lilja við af mér og ég fór í vinnuna. Svo á miðvikudeginum var ég í vinnunni til kl 15 og eftir það var ég í hestaferð með þessum 3 rugluðu kellingum og Martinu sem er stúlka nokkur frá Þýskalandi. Við fórum út í Húsey, gistum þar, grilluðum og fórum í standútreið. Svo á fimmtudeginum riðum við frá Húsey og í Kirkjubæ og svo á eftir fórum við í hamborgara og sund upp á Skjöldólfsstöðum sem var virkilega skemmtilegt sérstkalega fyrir hana Höllu mína :D og já ég gerði mig að fílfi.....

Föstudeginum kom síðan Elín elskan með í hestaferðina. Við riðum frá Kirkjubæ og í Galtastaði til hanns Kalla. Þar settum við hestana í girðingu og fengum okkur síðan kaffi hjá honum Kalla sem var náttúrulega til þess að bjarga deginum!!! En svo þegar við héldum frá honum þá brast líka á þessi fína þoka sem varð til þess að við náttúrulega villtumst eins og einhverjir rugludallar fundum aldrei helvítans slóðina sem við áttum að fara eftir en eftir nokkuð langa reið þá sáum við nú allt í einu glitta í Heiðarsel, en þangað var förinni einmitt haldið. Og eftir það vorum við heilar á höldnu..svolítið blautar en fínar.

Heyrðu síðan var ættamót upp á Skjöldólfsstöðum sem ég var að vinna á um helgina eftir að þetta var búið. Svo var bara meiri vinna, hestbak og svona. Jú ég var líka veik um þá helgi sem var ekki gaman, en svona er lífið. Núna er síðan aftur komin helgi (shit hvað tíminn er fljótur að líða) og það er annað ættarmót upp á Skjöldólfsstöðum. Fór uppeftir að vinna í kvöld, var nú bara mjög rólegt inni allir voru bara úti að syngja og læti. Svo er bara að fara að vinna aftur á morgun og það verður nú örugglega eitthvað skrautlegt :D:D:D

17 dagar í utanlandsferð .D:D:D:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 00:11:59 / kobba

Bara 30 dagar í útlönd

Ég er sko farin að hlakka til að fara út í enda júlí. Förum út 31.júlí og verðum í tvær vikur, þetta verður fint. Mjög gott að komst aðeins í burtu af landinu. Annars var helgin bara fín. Ball á Stekkhólma bæði kvöldin. Fínt fínt, gist í tjaldi og læti maður.

Ég var að rita hjá dómurum um helgina og það var mjög fínt annars dómarinn sem ég ritaði hjá þá í seinna skiptið sem ég ritaði hann er bara snillingur gekt skemmtilegur maður. Hitti hann síðan á balli á laugardeginum og hann var svo blind hauga fullur og það var allveg frábært. Svo var maður bara eitthvað að hjálpa til við að tína rusl og svona. Í dag (sunnudag) gerði ég hins vegar ekki neitt nema að liggja í brekkunni og horfa á keppnina og jú eftir keppni tíndi ég rusl og fór í Eiða og þreif hús sem að einhverjir gistu í.

Annars bara að fara að vinna á morgun og svo er hestaferð á mið, fimmt og föst :D:D:D jei gaman gaman.


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 00:11:48 / kobba

Fjórðungsmót

Jæja krakkar mínir einhverjir s.s. Dagný byrjuð að kvart yfir blogg leysi...en ég meina um hvað á ég eiginlega að blogga, humm jú ég er búin að vinna og vinna og vinna eða eins og einn pólverjirnn sem er í  mat upp á Skjöldólfsstöðum sagði; Why you no stop working????. En já það eru s.s menn í mat uppfrá og þeir eru að gera girðingu meðfram jökulsánni, sem er svo sem ekki frásögufærandi nema hvað að í þessum hópi eru 3 pólverjar og einn lithái. Pólverjarnir eru alltaf eitthvað að reyna við mann OJJJJ þeir eru gamlir og ógeðslegir, nema hvað að svo voru 3 nýjir að bætast við í dag þ.e.a.s. 3 pólverjar og vitið menn ég sá fallegan Pólverja sem verður í mat uppfrá...jei gaman í vinnunni hjá mér eftir helgi að horfa á fallega pólverjan, hann er sko 21 jább þessu komst ég sko að í dag.

Annar bara frí fram undan eða sko frí frá Skjöldólfsstöðum er reyndar að fara að vinna á morgun við fjórðungsmótið sem ritari hjá einhverjum dómara. öss ég vinn meira að segja í fríunum mínum þetta er nú að verða alvarlegt hjá mér. Nema hvað að þegar ég verð síðan í fríi fimmtudag og föstudag í næstu viku þá verð ég sko ekki að vinna því að þá er maður sko á leið í hestaferð með "kellingum" s.s. Mömmu og hennar vinkonum tíhí það er nú alltaf gaman að fara í svona kellingaferð, þótt að það verði yfirleitt þannig að þaiað sé eins og maður eigi MARGAR mömmur, kobba gerðu þetta kobba gerðu hitt...bara gaman!!!

Annar kem kanski með eitt annað blogg hérna eftir helgi frá því sem gerðist því að það á sko að vera eitthvað um að vera. oG JÁ Tíbrá það er sko verið að fara á ball á laugardaginn í Stekkhólma :D hitt vonandi sem flesta þar!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 01:12:25 / kobba

Vælubílinn!!!!

Sko Hallóhalló ég verð nú bara að segja eins og er að það þarf eiginlega að hringja á vælubílinn fyrir sumar konur og þá á ég við þær er kalla sig feminista.HVAÐ ER MÁLIÐ???? Búhúhú þær eru alltaf grenjandi yfir ENGU eins og t.d einhver kona sem kærði kók Zero auglýsingarnar fyrir að vera niðrandi fyrir konur...HVers vegna ekki kynlíf með ZERO forleiks??? Hvað er svona niðrandi fyrir konur í þesu er þetta ekki allveg eins "niðrandi" fyrir kalla ég meina haldið þið virkilega að þeim finnist ekkert gaman í forleik..piff..einmitt reynið að segja mér það!!! Ég bara skil þetta ekki svo eru þær alltaf að koma í sjónvarpið vegna þess að þær eru að kvarta yfir nekartadansstöðum og þessu og hinu. Hvernig væri bara að þær myndu fara á svona nektardansstað og einkadans og læti og athuga hvernig þetta gengur fyrir sig áður en þær fara að væla eitthvað???  Sko mér finnst nektardansstaðir ekkert niðrandi fyrir konur þarna eru bara konur sem eru stoltar af líkama sínum og HVAÐ MEÐ ÞAð þær meiga allveg sína hann fyrir mér, ég ætla að fara á svona stað einhverntíma við tækifæri...Hver vill koma memm????

Humm já þetta reyndar hlítur að ýta undir þá hugmynd hjá henni Lilju að ég sé eitthvað öfug..en hey hver er það svo sem ekki innst inn við beinið? ;)

Hverjir ætla á ball um helgina og hverjir ætla að gera eitthvað annað (bíladagar)??? Endilega látið vita er að hugsa um að skella mér á ball ef einhver nennir að vera driver!!! Ætla nefnilega aðeins að fá mér við því í starfsmannapartýinu upp a Skjöldólfsstöðum...hehe...gaman gaman.

Annars er ég bara í fríi núna yfir helgina, er bara að fara í ríðingar alla helgina og svo náttúrulega eitthvað djamm ef maður nennir.

Annars ælta ég bara að fara að lúlla mér svona í rólegaheitunum, svaf bara svo mikið áðan að´ég er ekki allveg til í það að fara að sofa núna. En já ég öfunda Hrafnkötlu bara svona að koma því á framfæri.....og já Garðar Cortes er bara með kynþokkafyllstu rödd sem finnst á íslandi og þó víðar væri leitað og svo spillir útlitið náttúrulega ekki fyrir!!1 SAMM'ALA einhver????

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 00:24:02 / kobba

sumarið er tíminn....

Var að hugsa um að henda inn einu litlu bloggi einhverjum til skemmtunar... Í gær fór ég á ball niður á eskivík með Í svörtum fötum.... Skelltum okkur, ég, Aggi, Tóti, Gunnar og Dagbjartur (þeir eru í verknámi frá Hvanneyri hérna fyrir austan) í pottinn upp á skjöldólfsstöðum áður en við fórum á ball.... Þetta var bara ógeðslega skemmtilegt ball engin vandræði með neina og svo þurfti ég ekki að vera bílsstjóri eins og ég hélt í byrjun kvöldsins :D

Annars hef ég ekki gert neitt frásögufærandi síðan ég skrifaði seinast eða hvað jújú ég fór í bíó einhvertíman fyrir löngu síðan með Höllu, Antoni, Stefáni og Fjólu.....ég og Hall hittum síðan Dagrúnu og Láru eftir bíó, skutluðum Láru heim til sín og svona.

Svo er maður bara ´búinn að vera í vinnuni og í rollustússi.....vorum að sleppa rollum upp í fjall í dag, gaman að því já.

En allavega eins og ég sagði þá á þetta bara að vera stutt blogg er að fara í vinnuna á morgun búin að vera í 2 daga fríi sem er bara mjög fínt.

Góða nótt alle sammen


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9